2.6.09

Sumarið er tíminn

Það er töluvert liðið síðan síðasti vetrardagur kvaddi okkur. Ég hripa hér niður nokkur orð í flýti því það er mikið að gera hjá heimavinnandi húsmæðrum í fæðingarorlofi. Það var að berast áríðandi fréttatilkynning frá barnaland.is

Hún hljóðar svo:
Netverjar vinsamlegar athugið. Settar hafa verið inn nýjar myndir á heimasíðuna agustbragi.barnaland.is. Óvíst er með öllu hvenær næstu myndir berast svo njótið vel og lengi.

Þessi tilkynning verður einnig lesin með kvöldfréttum klukkan 18 og veðurfréttum klukkan 22.
Góðar stundir.